Björgvin Þór, Sigurður og Guðmundur heiðraðir
Heiðraðir
Sigurður, Guðmundur, Björgvin Þór og Hlynur Már sem fékk sérstaka viðurkenningu fyrir frækilega björgun í Vestmannaeyjahöfn. Ljósmynd/Óskar Pétur

Að venju voru sjómenn sem látið hafa af störfum heiðraðir á hátíð Sjómannadagsins á Stakkó sem Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands stýrði. Þeir sem heiðraðir voru eru Björgvin Þór Björgvinsson, Sigurður Vignisson og Guðmundur Guðlaugsson.

Jötunn Sjómannafélag og Sjómannadagsráð Vestmannaeyja heiðruðu Björgvin Þór, sem stundaði sjóinn í 27 ár. Hann er lögskráður 6189 daga á 27 árum sem eru 230 lögskráðir dagar á ári.

Vm- félag vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómannadagsráð Vestmannaeyja heiðruðu Sigurð vélstjóra sem byrjaði á Elliðaey VE 45 með Gísla Sigmars gosárið 1973. Var síðast á Lóðsinum og fór í land í maí.

Sjómannadagsráðs Vestmannaeyja og Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi heiðruðu Guðmund Guðlaugsson skipstjóra sem byrjaði til sjós 14 ára og lauk ferlinum sem skipstjóri á Þórunni Sveinsdóttur VE.

https://eyjar.net/hlynur-mar-heidradur-fyrir-fraekilega-bjorgun/

Nýjustu fréttir

Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar
Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
ÍBV sækir Þrótt heim í dag
Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.