Furðufiskar þorskstofnsins hafa yndi af því að láta áhafnir Vinnslustöðvaskipa veiða sig og enda ævina í Vestmannaeyjum.
Í fyrra urðu tveir fiskar landsþekktir og frétt um annan þeirra, „gulasta fisk íslenska þorskstofnsins“ var mest lesna fréttin á fréttavefnum mbl.is á árinu 2020. Áhöfnin á Drangavík VE fékk báða furðufiska liðins árs í sömu vikunni á svipuðum slóðum, við Surtsey.
Fyrr í þessari viku, 22. eða 23. mars, náði áhöfnin á Kap II enn einum furðuþorskinum en í þetta sinn í Breiðafirði. Þorskurinn var í afla sem landað var úr skipinu á Snæfellsnesi til flutnings landleiðina til vinnslu í Eyjum.
Þriðji fiskurinn er sýnilega bæði stærri og gerðarlegri en félagar hans úr furðufiskadeildinni sem héldu við Surtsey.
Við höfðum í fyrra eftir Gísla Jónssyni, sérgreinalækni fisksjúkdóma, hér á þessum vettvangi að furðufiskarnir bæru einkenni meðfædds erfðagalla.
Gunnar Jónsson fiskifræðingur fékk að sjá myndir af báðum þorskunum 2020 og hafði aldrei aðra eins fiska augum litið. Hann var á því að við Surtsey væri rekið „vistheimili fyrir erfðafræðilega afvegaleidda þorska.“
Nú blasir sem sagt við að annað furðufiskavistheimili er í Breiðafirði eða að Surtseyjarheimilið hefur opnað þar útibú.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.