„Blússandi veiði”
vestmannaey_londun_280323
Landað í Eyjum. Eyjar.net/Tryggvi Már

Vestmannaeyjaskipin Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu bæði fullfermi í Eyjum í gær.

Afli Bergs var mest þorskur og ýsa en afli Vestmannaeyjar var blandaðri; þorskur, ýsa, ufsi og langa. Það tók innan við sólarhring hjá skipunum að fá í sig. Rætt er stuttlega við skipstjórana á vef Síldarvinnslunnar, en þeir létu vel af sér. Jón Valgeirsson á Bergi sagði að þeir hefðu verið að veiðum í Háfadýpinu.

„Við vorum hérna við bæjardyrnar og það hefur verið mokveiði sitt hvoru megin við Eyjarnar. Fiskurinn heldur sig innarlega en það er miklu minna að fá utar. Þetta er hinn fallegasti fiskur sem fæst, stór og góður. Að undanförnu hefur hreinlega verið blússandi veiði og ekki yfir neinu að kvarta.”

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, tekur undir með Jóni og segir að veiðin hafi gengið eins og í sögu.

„Við vorum í Háfadýpinu og á Hálshrauni og veiðin gekk afar vel. Staðreyndin er sú að það var þarna aðgæsluveiði. Menn geta ekki verið annað en sáttir við aflabrögðin og fiskurinn sem fæst er hinn ágætasti.”

Bæði skip héldu til veiða strax að lokinni löndun í gær og munu þau leggja áherslu á ýsu- og ufsaveiði að þessu sinni.

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.