Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Dýpkunarskipið Álfsnes innan hafnar í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vegagerðin og Vestmannaeyjabær boða til opins íbúafundar í Höllinni þriðjudaginn 2. júní klukkan 17:00 þar sem farið verður yfir stöðu Landeyjahafnar, þær áskoranir sem upp komu í vetur og árangur dýpkunarframkvæmda undanfarin ár.

Fundurinn kemur á tímum þegar samgöngumál Vestmannaeyja hafa verið mikið í umræðunni vegna erfiðrar stöðu í Landeyjahöfn, bilunar í Herjólfi og þeirra áhrifa sem það hefur haft á íbúa og atvinnulíf í Eyjum.

Á fundinum verða meðal annars kynntar frumniðurstöður rannsóknarverkefnis danskra sérfræðinga hjá DHI A/S, dönsku straumfræðistofunni. Verkefnið hófst haustið 2024 og hefur það markmið að finna leiðir til að auka nýtingu Landeyjahafnar.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni var fyrsta skref verkefnisins að þróa sandburðarlíkan byggt á 15 ára gagnasafni. Líkanið hefur nú verið fullkvarðað og nýtt til að greina mögulegar breytingar á höfninni og nærumhverfi hennar. Einnig verða kynntar hugmyndir Vegagerðarinnar um næstu skref í þróun og uppbyggingu hafnarinnar.

Fjöldi fyrirlesara á dagskrá

Fundarstjóri verður G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Meðal þeirra sem flytja erindi eru: Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, Fannar Gíslason, forstöðumaður hafnadeildar Vegagerðarinnar og Kjartan Elíasson, sérfræðingur á hafnadeild Vegagerðarinnar.

Að erindum loknum verður opnað fyrir spurningar úr sal og munu fyrirlesarar svara fyrirspurnum fundargesta. Innviðaráðherra mun einnig taka þátt í umræðunum.

Vegagerðin og Vestmannaeyjabær hvetja alla áhugasama til að mæta á fundinn og taka þátt í samtali um framtíð og þróun Landeyjahafnar, segir í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar.

Nýjustu fréttir

Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.