Bókunarkerfið enn niðri – Herjólfur birtir siglingaáætlun laugardagsins
20230429_173832
Herjólfur í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Bókunarkerfi Herjólfs er enn niðri og því ekki hægt að bóka ferðir eða gera breytingar á bókunum. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þrátt fyrir það hefur félagið birt siglingaáætlun laugardagsins svo farþegar geti skipulagt ferðir sínar.

Á laugardag 9. maí verður siglt frá Vestmannaeyjum kl. 09:30, 12:00, 19:30 og 21:30. Ferðirnar kl. 09:30 og 19:30 koma í stað fyrri áætlunar sem gerði ráð fyrir brottförum kl. 07:00 og 17:00.

Frá Landeyjahöfn verður siglt kl. 10:45, 13:15, 20:45 og 23:15.

Herjólfur biður farþega um að mæta tímanlega til ferða og ítrekar jafnframt að starfsfólk geti enn ekki bókað eða breytt ferðum á meðan kerfið liggur niðri. Félagið segist munu upplýsa farþega um leið og frekari fréttir berast af stöðu bókunarkerfisins.

Nýjustu fréttir

Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.