Bráðabirgðafríverslunarsamningur við Bretland undirritaður
Sturla Sigurjónsson, sendiherra í Lundúnum, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd.

Íslensk og bresk stjórnvöld undirrituðu í gær bráðabirgðafríverslunarsamning sem tryggir óbreytt tollkjör vegna vöruviðskipta við Bretland. Samningurinn mun taka gildi um áramót þegar aðlögunartímabili vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu lýkur. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, segir fagnaðarefni að kjarnahagsmunir íslenskra fyrirtækja hafi nú verið tryggðir.

Samningurinn sem undirritaður var í Lundúnum í gær byggist á samningi sem upphaflega var gerður í apríl 2019 og stóð til að tæki gildi ef útganga Bretlands úr ESB hefði verið án samnings. Þar sem Bretland gekk úr Evrópusambandinu með útgöngusamningi þann 31. janúar sl. kom aldrei til þess að sá samningur tæki gildi. Í október sl. náðist samkomulag um að bráðabirgðasamningurinn taki gildi um áramót uns fríverslunarsamningurinn er tilbúinn og með undirrituninni í dag er sú ákvörðun fest í sessi.

„Ég fagna því að kjarnahagsmunir íslenskra fyrirtækja í viðskiptum við Bretland hafi verið tryggðir með bráðabirgðafríverslunarsamningi.“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. „ Markmið okkar er hins vegar að klára víðtækan fríverslunarsamning sem fyrst enda er Bretland einn mikilvægasti útflutningsmarkaður íslenskra fyrirtækja.“

Íslensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á að styrkja enn frekar og byggja upp sambandið við Bretland eftir útgöngu. Bráðabirgðafríverslunarsamningurinn tryggir að inn- og útflutningur til og frá Bretlandi lúti ekki hærri tollum en í dag. Markmið samningsins er þannig að viðhalda gildandi kjörum þar til samið hefur verið um nýjan og viðameiri fríverslunarsamning á milli ríkjanna. Noregur á jafnframt aðild að samningnum.

Fríverslunarviðræður Íslands og hinna EFTA-ríkjanna innan EES, Noregs og Liechtenstein, við Bretland standa nú yfir. Þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn hafa viðræður gengið vel og eru langt komnar. Samninganefndir hafa hist ört og reglulega á rafrænum fundum með það að markmiði að ljúka viðræðum svo fljótt sem auðið er.

Fríverslunarviðræður Bretlands og Evrópusambandsins eru yfirstandandi og enn er óvíst hvort takist að ljúka samningum fyrir áramót. Bretar og Evrópusambandið hafa ekki tilkynnt um sambærilegar bráðabirgðaráðstafanir til að brúa bilið þangað til samningar eru í höfn.

Þar sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) mun ekki gilda lengur um Bretland frá og með 1. janúar 2021 þurfa Íslendingar að huga að nokkrum atriðum í því sambandi, sérstaklega þeir sem búa á Bretlandi eða hyggjast flytja þangað á næstunni og þeir sem stunda viðskipti við Bretland eða eiga þar annara hagsmuna að gæta. Utanríkisráðuneytið hefur tekið saman gátlista af því tilefni.

Nýjustu fréttir

Þrjú álitaefni réðu úrslitum í vatnslagnarmálinu
ÍBV vann Val í Goslokaleik
Svipmyndir frá líflegum laugardegi á Goslokahátíð
Goslok: dagskrá sunnudags
Goslokahátíð stendur undir nafni sem fjölskydluhátíð
Fjölbreytt mannlíf á öðrum degi Goslokahátíðar
Forsendur dómsins verða yfirfarnar
Þrír af okkar fremstu söngvurum syngja í Eldheimum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.