Bræla, ófærð og Herjólfur siglir ekki

„Því miður falla niður siglingar fyrri hluta dags vegna veðurs og sjólag,  en bæði er ófært til Landeyjahafnar og Þorlákshafnar. Ákvörðun sem þessi er alltaf tekin með hagsmuni farþega og áhafnar í huga, vonum við að farþegar okkar sýni því skilning. Tilkynning vegna siglinga seinnipartinn í dag verður gefin út kl. 15:00,“ segir í tilkynningu frá Herjólfi í morgun.

Fleira hrjáir því bæði Þrengsli og Hellisheiði eru lokaðar og spáin ekki upp á það besta samkvæmt samkvæmt Veðurstofu. Í dag verður vestan 15 til 25 m og dimm él, hvassast suðvestanlands. Dregur úr vindi og éljum vestan til síðdegis. Lægir enn frekar í nótt og léttir til. Suðvestan 5 til 13 norðan til á morgun, en hæg breytileg átt sunnantil. Bjartviðri. Frost 1 til 8 stig.
Vaxandi austanátt og þykknar upp sunnantil annað kvöld með snjókomu eða slyddu.

Ölduhæð í Landeyjahöfn er yfir fjórir metrar en verður komin í tvo metra síðdegis á morgun.

Nýjustu fréttir

Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.