Þrátt fyrir þreytandi ótíð að undanförnu er góður hugur í áhöfnum Vestmannaeyjar VE og Bergeyjar VE og menn fagna nú batnandi veðurhorfum. Eyjatogararnir lönduðu báðir tæplega 50 tonnum í Neskaupstað eftir stuttar veiðiferðir, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Aflinn var að mestu þorskur og ýsa.
Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við skipstjóra beggja skipa, sem höfðu verið rúma tvo sólarhringa að veiðum.
Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði skipið hafa haldið til veiða síðdegis á mánudegi eftir brælustopp. Fyrst hefði verið farið norður á Gletting, en þar hefði verið lítill kraftur í veiðinni. Þá var tekið eitt hol í Seyðisfjarðardýpi áður en ferðinni lauk á Gerpisflaki.
„Veðrið upp á síðkastið hefur verið þreytandi en þó var þokkalegasta veður síðasta daginn í túrnum. Við munum halda til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lýkur,“ sagði Birgir Þór við heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði skipin hafa verið kölluð inn vegna mannaskipta og vegna þess að fisk hefði vantað í vinnslu Vísis í Grindavík. Bergey hóf einnig veiðar á Glettingi, þar sem fékkst dálítið af þorski og ýsu í upphafi, en lauk ferðinni á Gerpisflaki.
„Það hefur sannast sagna verið bölvuð ótíð að undanförnu en nú stefnir í þokkalegasta veður og eðlilega eru menn fegnir því. Annars eru menn brattir hér um borð og láta ekki smá bræluskít hafa alltof mikil áhrif á sig,“ sagði Jón.