Breki kveður ÍBV
Breki Ómarsson hefur nýtt sér riftunarákvæði í samningi sínum við ÍBV og verður hann ekki áfram hjá félaginu. Þetta kemur fram í frétt á vefnum fotbolti.net. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið en gat fengið sig lausan.

Breki er 25 ára sóknarmaður sem uppalinn er í Vestmannaeyjum og hefur til þessa leikið allan sinn feril þar.

Á síðasta tímabili byrjaði hann einungis einn leik og kom sextán sinnum inn á þegar ÍBV féll úr Bestu deildinni.

Hann fiskaði vítaspyrnu í Vesturbænum sem tryggði ÍBV stig og þá skoraði hann dramatískt jöfnunarmark gegn HK í Kórnum.

Nýjustu fréttir

Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
ÍBV sækir FH heim í dag
ÍBV með öruggan sigur á HK
Malbikað á fimm stöðum í næsta veðurglugga
Herjólfur til Þorlákshafnar síðdegis og í fyrramálið
Þéttsetið á tónleikum Júníusar Meyvant í Alþýðuhúsinu
Vilja gefa Blátind með meðgjöf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.