Breki til veiða á ný eftir málningar- og viðhaldsstopp

Togarinn Breki VE lagði úr höfn í Vestmannaeyjum í kvöld í fyrstu veiðiferð eftir stopp í hálfan annað mánuð. Skipið var tekið í slipp í Reykjavík og málað hátt og lágt. Þá var fjarlægt skilrúm í lest sem bætir starfsaðstæður og eykur pláss svo hægt væri að bæta við nokkrum körum af fiski. Enn fremur var kælikerfi í lest eflt og dyttað að ýmsu öðru áður en skipinu var siglt heim til Eyja fyrr í vikunni.

Iðnaðarmenn voru um borð í dag til að græja það sem út af stóð fyrir brottför. Magnús Ríkarðsson skipstjóri var þar nærstaddur og fylgdist grannt með öllu. Hann gekk jafnframt um skipið með upplýsingamiða og kom þeim fyrir þar sem við átti. Til dæmis setti hann teikningu af neti við hlið kassa með björgunarnetinu Markúsi við skutrennu. Kassinn var að vísu rækilega merktur áður og enginn komst hjá því að vita hvað í honum byggi. Reglur eru samt reglur og skoðunarmenn voru væntanlegir um borð til að ganga úr skugga um að fyrirmælum um upplýsingarmerkingar væri framfylgt.

Maggi skipstjóri hætti ekki á að fá gult spjald fyrir að hafa ekki upplýsingamiða þar sem þeir eiga að vera. Hann er enda þekktur fyrir nákvæmni og lætur ekki hanka sig á neinum formsatriðum regluverks, hvorki í smáu né stóru.
Breki var sérlega glæsilegur á að líta við brottför í kvöldsólinni, nýmálaður, þveginn og strokinn. Markúsarnetið rækilega merkt, Maggi skipper glaðbeittur í brúnni og áhöfnin ólm að komast á miðin.

Nýjustu fréttir

Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu 
Fullfermi á báðum togurum
Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast
Fullorðinsfimleikar hjá Rán
Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.