Breytt deiliskipulag miðbæjarsvæðis við Hvítingaveg

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 2. desember 2021 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir breytingu á Deiliskipulagi miðbæjarsvæðis við Hvítingaveg, auglýst skv. 1. Mgr. 43. Gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Helstu breytingar á svæðinu eru að bætt er við fjórum byggingarreitum við Hvítingaveg og einum byggingareit sunnan við Alþýðuhús. Einnig er gert ráð fyrir aðkomuslóða að bakhlið húsanna við Hvítingaveg, eða bakvið Bókasafn Vestmannaeyja. Skipulagsbreytingarnar eru í samræmi við markmið Aðalskipulags Vestmannaeyja um að þétta byggð.

Greinagerð og uppdráttur

Skipulagsgögn verða til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Skildingavegi 5 til og með 31. janúar 2022 og má einnig finna í skipulagsgátt á vefsíðu sveitafélagsins.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér gögnin. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 31. janúar 2022 í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5, eða á netfangið umhverfissvid@vestmannaeyjar.is

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.