Breytt skipurit í Safnahúsinu

Á fundi bæjarráðs í síðustu viku var lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs og forstöðumanns Safnahússins um skipulag Safnahússins í Vestmannaeyjum.

Safnahúsið samanstendur af átta söfnum eða safndeildum í eigu og umsjón Vestmannaeyjabæjar, þ.e. bókasafni, héraðsskjalasafni, Landlyst/Skanssvæði, listasafni, ljósmynda- og kvikmyndasafni, Sagnheimum, byggðasafni og náttúrugripasafni og Sigmundssafni. Þá heyrir fjölmenning undir Safnahúsið.

Í minnisblaðinu er tillaga um að fella öll umrædd söfn í Safnahúsi undir ábyrgð eins forstöðumanns og að ráðinn verði verkefnastjóri sem annast faglega umsjón með starfsemi Sagnheima, Byggðasafns, sem jafnframt verður staðgengill forstöðumanns. Með þessu er stjórnskipulag safnanna einfaldað og rekstur þess gerður hagkvæmari.

Þá er er lagt til að myndaðar verði fimm einingar/deildir undir Safnahúsi: a) Bókasafn; b) fjölmenning; c) ljósmynda- og listasafn; d) Héraðsskjalasafn og; e) Sagnheimar, sem inniheldur m.a. Byggðasafnið, Náttúrugripasafnið og Landlyst (Skansvæðið).

Bæjarráð samþykkti tillögu framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs og forstöðumanns Safnahússins um skipulag starfseminnar og skipurit í Safnahúsinu og að ráðinn verði verkefnastjóri í stað forstöðumanns Sagnheima, Byggðasafns. Ekki er um að ræða nýjar fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2021.
Skipurit Safnahúss 2021.pdf

Minnisblað um breytt skipulag Safnahúss Vestmannaeyja – lokaeintak.pdf

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.