„Í tilefni þess að Kristján Óskarsson, betur þekktur sem Stjáni á Emmunni varð áttræður 13. maí síðastliðinn verður sýnt brot af því besta úr hans einstaka safni viðtala og myndefnis. Þetta er kjörið tækifæri til að heiðra það mikla og óeigingjarna starf sem hann hefur unnið við að varðveita sögu og minningar Eyjafólks,“ segir í tilkynningu frá Sagnheimum.
Dagskráin verður haldin í Sagnheimum laugardaginn 6. júní klukkan 11:00, á sjálfri sjómannadagshelginni. Sýndir verða um þriggja mínútna bútar úr 12 viðtölum. Elstu viðtölin eru frá árinu 1990 og geyma ómetanlegar heimildir um fólk, líf og samfélag í Vestmannaeyjum. Einnig verða sýndar eldri ljósmyndir af fólki og húsum í Eyjum ásamt skýringum sem Kristján vann á sínum tíma með Sævaldi Elíassyni og Áka Heinz Haraldssyni.
Fyrr á þessu ári stóðu Sagnheimar fyrir sýningarröðinni Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma, þar sem sýndir voru átta þættir við frábærar undirtektir. Þessi dagskrá er hugsuð sem lokaviðburður þeirrar sýningarraðar.
„Ég hef ekkert komið nálægt þessu, ætla bara að mæta og njóta eins og þú,“ segir Kristján í samtali við Eyjafréttir og segist spenntur fyrir sýningunni. „Í auglýsingunni segir að sýna eigi brot úr mínum bestu viðtölum en ég held að það sé bara helvítis lygi. Ég á svo mikið af góðum viðtölum en þeir hafa bara ekki nennt að hlusta á öll hundrað viðtölin,“ bætir hann við og hlær.
Safn Kristjáns hefur vaxið mikið í gegnum árin og er ómetanleg heimild um sögu Vestmannaeyja á tímum mikilla breytinga og umbrota.
„Ég er mjög þakkláturr að þetta sé gert á meðan ég er lifandi. Þegar ég verð kominn niður á sex fetin veit ég ekkert af þessu. Þetta verður þó allt til, eins og Guðni Ágústsson sagði þegar hann kynnti nýjustu bókina sína á Einsa Kalda fyrir nokkrum árum. Ég tók allt upp og þá sagði Guðni: „Þú verður jafnfrægur og Gunnar á Hlíðarenda og Grettissaga lifir. Viðtölin sem þú hefur tekið við mig og fleiri verða til í mörg hundruð ár.“
Gunnar Júlíusson, starfsmaður Sagnheima hefur séð um tæknihlið sýningarraðarinnar ásamt Viktori Pétri Jónssyni. Efnið var unnið upp úr kvikmyndum sem hópur manna, sem kenndi sig Heimaklett tók í Vestmannaeyjum á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Kári Bjarnason, forstöðumaður Safnahúss opnar dagskrána en kynnir er Arnar Sigurmundsson.
„Þar er að finna ómetanlegar heimildir um lífið í Vestmannaeyjum á þessum árum og safn Stjána er ekki síðra. Á laugardaginn fáum við að sjá brot úr viðtölum hans við Stebba Run, Unni Guðjóns, Guðgeir Matt, Jóa danska og Óla Gränz svo nokkur séu nefnd,“ segir Gunnar og hvetur fólk til að mæta.