Brotist inn í 10 geymslur í Áshamri

Þann 25. apríl sl. var lögreglu tilkynnt um að brotist hafi verið inn í einar 10 geymslur í stigaganginum að Áshamri 59. Stolið var m.a. Yato rafmagnsbílabónara, Orvis veiðivöðlum, grænum LOOP veiðijakka, Hardinga veiðistöng og bláum Len Mar sjópoka sem í voru buxur og peysa.

Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki en þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um hugsanlega gerendur eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444 2090 eða í gegnum vestmannaeyjar@logreglan.is

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.