Brottför seinkar frá Landeyjahöfn
herjo_03_2023_landeyjaho
Herjólfur í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Aðstæður í Landeyjahöfn eru mjög erfiðar eins og stendur, en ölduhæð er 4.8 metrar. Að því sögðu þarf að seinka brottför sem áætluð var kl. 10:45 til 11:45.  Afsökum við óþægindin sem það kann að valda, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Þar segir jafnframt að ferðir kl. 12:00, 13:15, 14:30, 15:45 falli niður vegna ölduhæðar. Hvað varðar siglingar fyrir seinnipartinn í dag verður gefin út tilkynning fyrir kl. 15:00.

Ferðir kl. 12:00, 13:15, 14:30, 15:45 falla niður vegna aðstæðna í Landeyjahöfn. En ölduhæð er núna 4.7 metrar í Landeyjahöfn. Þeir farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni.

Nýjustu fréttir

Úti er ævintýri
Áhyggjur af útbreiðslu lúpínu og kerfils
Baldur áfram varaskip Herjólfs vegna tafa á viðgerð
Alexandra Ósk, Ásdís Halla og Birna María eru mættar til Kína með u-20 ára landsliðinu
Laxey sækir 6,7 milljarða í nýtt hlutafé
Myndband frá Haugasvæðinu: Vinnan komin á fullt
Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.