Búningaskiptimarkaður á bókasafninu
Hægt verður að skiptast á búningum á bókasafninu fyrir Öskudaginn.

Það styttist í Öskudaginn og eflaust margir krakkar og foreldrar farnir að huga að búningum fyrir daginn.

Bókasafn Vestmannaeyja hefur brugðið á það ráð að setja upp skemmtilegan búningaskiptimarkað til að auðvelda undirbúning fyrir daginn.

Markaðurinn er hugsaður sem einföld og umhverfisvæn leið fyrir fjölskyldur og einstaklinga til að endurnýta búninga fyrir hátíðina. Hægt er að koma með búninga sem ekki eru lengur í notkun og gefa þeim nýtt líf hjá öðrum, eins er hægt að fá nýja búninga í staðinn.

Skiptimarkaðurinn verður opinn fram að Öskudegi.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.