Búslóð og jeppi urðu eldinum að bráð

�?að var rétt eftir klukkan hálf fjögur í nótt að lögreglu var tilkynnt um eld í Sæfellsbúinu sem stendur sunnarlega á Heimaey, talsvert utan við bæinn. Áður hafði lögreglan orðið vör við megna reykjarlykt sem lagðist yfir bæinn og var að leita að upptökunum þegar tilkynning barst um eldinn. Allt slökkvilið var þegar ræst út og að sögn lögreglu var mikill eldur húsinu þegar að var komið og mikinn reyk lagði yfir nágrennið.

Var hann það mikill að umsjónarmenn hesthúss á Lyngfelli, sem stendur rétt norðan við Sæfellsbúið, voru ræstir út til að huga að hestunum.

Slökkvistarfi lauk um klukkan sex og þá stóð húsið, sem er um 400 fm stálgrindarhús, uppi en ljóst er að það og allt sem inni í því var er ónýtt. Ekki hefur verið starfsemi í húsinu í fjögur ár en það hefur verið notað undir hjólhýsi, tjaldvagna og fleira. Núna voru þar gamall jeppi og búslóð og er hvoru tveggja gjörónýtt.

Ekki vitað um eldsupptök en rafmagn var á húsinu.

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.