Byggðin undir hrauni
xr:d:DAFCFl_9Mto:8,j:28318302546,t:22061010
xr:d:DAFCFl_9Mto:8,j:28318302546,t:22061010

Villi á Burstafelli heldur sína 10. einkasýningu í Einarsstofu alla sjómannahelgina og er frítt inn.

Villi segir frá: „Viðfangsefni sýningarinnar er húsin í bænum og aðallega þau sem fóru undir hraun. Það er mikil saga á bakvið hvert hús; miklar tilfinningar; sorg og gleði í bland við allt annað. Ég tel nauðsynlegt að viðhalda minningum um þau og þetta er mín leið til þess.“

Um 140 myndir eru á sýningunni og því nóg að sjá. „Ég vona að það gleðji einhverja að sjá þær, og ég vona að ég sjái sem flesta hjá mér um helgina,“ segir Villi að lokum. 

Alla sjómannahelgina er einnig opið í Sagnheimum, Landlyst og Stafkirkjunni. Á laugardag verður svo opnaður fyrsti áfangi sýningar á munum Sagnheima, náttúrugripasafns í húsnæði Sea Life Trust við Ægisgötu. Þar er opið lau: 10-16 / sun 13-16.

Nýjustu fréttir

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.