Byrja að sigla nýju ferjunni í næsta mánuði
Mynd: Vegagerðin

„Áhöfn mun fara út á helginni og eftir helgi til að undirbúa heimsiglingu til Vestmannaeyja,“ sagði Guðbjartur Ellertsson framkvæmdastjóri Herjólfs í samtali við Eyjafréttir í dag, en samningar náðust á milli Vegagerðarinnar og Crist S.A. um afhendingu nýrrar Vestmannaeyjaferju í gær. „Ég geri ráð fyrir að undirbúningur taki einhverja daga en stefnt er að því að geta lagt í hann um aðra helgi og ekki seinna en þann 9. júní, sem er sunnudagur. Heimsiglingin ætti ekki að taka lengri tíma en 6 sólahringa þannig að við ættum að vera hér um miðjan mánuðinn,“ sagði Guðbjartur.

„Tilkynning kom nokkuð óvænt og hratt og því hefur undirbúningur verið mikill. Það þarf bæði að gera ákveðnar ráðstafanir í Póllandi og ekki síður hér heima en stefnt er að því að stytta eins og kostur er þann tíma sem tekur að koma nýju ferjunni í rekstur. Vonandi að það verði ekki meira en 10 til 15 dagar.  Við ættum því að geta hafið rekstur á nýju ferjunni í júní,“ sagði Guðbjartur sem vildi að endingu óska öllum með formlegum hætti til hamingju því Herjólfur er á leiðinni heim.

Nýjustu fréttir

Maí sól – Lag til ömmustelpurnar
Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Dýptarmæling í dag
Eyjalistinn í sókn: Heimasíða og stefnuskrá líta dagsins ljós!
Vinnandi hendur frá hafi til hátíðarborðs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.