Dagný Hauksdóttir ráðin Skipulags- og umhverfisfulltrúi

Ákveðið hefur verið að ráða Dagnýju Hauksdóttur í stöðu Skipulags- og umhverfisfulltrúa hjá Vestmannaeyjabæ. Dagný hefur lokið PhD námi í verkfræði við DTU í Danmörku.

Samkvæmt auglýsingunni hefur skipulags – og umhverfisfulltrúi m.a. yfirumsjón með skipulags-, umhverfis- og náttúruverndarmálum sveitarfélagsins, þjónustu við íbúa og ráðgjöf fyrir bæjarstjórn, fagráð og nefndir sem fara með þau mál. Skipulags- og umhverfisfulltrúi er starfsmaður umhverfis- og framkvæmdasviðs og lýtur stjórn framkvæmdastjóra. Skipulags- og umhverfisfulltrúi starfar og stjórnar í samræmi við lög og reglugerðir sem gilda um skipulags- og umhverfismál sveitarfélaga. Einnig eftir lögum er varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu, samkvæmt markmiðum sveitarstjórnar og í samræmi við fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar á hverjum tíma.  Dagný mun hefja störf fljótlega.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.