Safnahelgi – Menningarveisla þessa og næstu helgi

Safnahelgi – Menningarveisla þessa og næstu helgi

Það var árið 2004 sem Kristín Jóhannsdóttir, þá menningar- og ferðamálafulltrúi Vestmannaeyja blés til fyrstu Safnanæturinnar í Vestmannaeyjum. Hugmynd sem hún tók með sér frá Þýskalandi og  hefur verið árviss viðburður síðan. Sannkölluð menningarveisla fyrstu helgina í nóvember. Fljótlega varð þetta að Safnahelgi og nú dugar ekki minna en tvær helgar.

Hefst hún í dag og verður hátíðin sett kl. 18.00 við Stafkirkjuna.

Dagskráin í ár er unnin í samráði við 100 ára afmælisnefnd Vestmannaeyja og er því umfangsmeiri en  verið hefur. Þessa helgi stendur hún fram á sunnudag. Um næstu helgi er byrjað á föstudaginn 15. nóvember og síðasti dagskrárliðurinn er sunnudaginn 17. nóvember.

Eins og áður er Safnahelgin mikil menningarveisla í tónum, tali og myndlist og fróðlegum erindum. Fólk er hvatt til að kynna sér dagskrána sem er að finna á öllum vefmiðlum í Vestmannaeyjum og heimasíðum Vestmannaeyjabæjar og Safnahúss.

Segja má að Menningar- og listvinafélagið þjófstarti með opnun á sýningu í Einarsstofu í Safnahúsi kl. 17:00 í dag. Er þetta samsýning í anda Júlíönu Sveinsdóttur sem var ein merkasta listakona Vestmannaeyja og landsins alls á fyrri hluta 20. aldar. Félagið verður með opið hús að Strandvegi 50 (Hvíta húsinu) helgina 9.-10. nóv. kl. 16:00 til 18:00.

Sjálf setningin verður að venju við Stafkirkjun þar sem séra Viðar Stefánsson verður með hugvekju og Guðný Tórshamar syngur nokkur lög við eigin undirleik.

Hátíðin heldur áfram á morgun, föstudag og sunnudag og líka um aðra helgi þar sem marg forvitnillegt verður í boði.

Fleiri viðburðir eru framundan í mánuðinu á vegum afmælisnefndar. Sunnudaginn  24. nóvember kl. 13:00 verður í Landakirkju sameiginleg messa allra söfnuða í Vestmannaeyjum.  Á eftir er kaffisamsæti í Safnaðarheimili. Landsþekktir söngvarar syngja í messunni og í kaffisamsætinu.

Seinna sama dag verður söngskemmtun og kaffisamsæti að Hraunbúðum í boði Vestmannaeyjabæjar.

Sunnudagur 1. desember kl. 20:00 í Eldheimum halda Katrín Halldóra og Pálmi Sigurhjartarson tónleika þar sem lög  sem Ellý Vilhjálms gerði fræg á síðust öld verða á dagskránni og fleiri lög.

Opnunartími safnanna um Safnahelgi: Sagnheimar, byggðasafn: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13-16. Ókeypis aðgangur. Eldheimar: Opið alla daga kl. 11-17. Sea Life Trust: Opið alla daga kl. 13-16.

Nýjustu fréttir

ÍBV mætir Val í fyrsta leik úrslita
The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.