Þjóðhátíðargestir geta nú sótt nýtt app, Dalurinn, sem verður miðpunktur upplýsinga og þjónustu fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Appið er nú aðgengilegt bæði í App Store og Google Play og verður stöðugt uppfært eftir því sem nær dregur hátíðinni.
Í Dalnum verður dagskrá Þjóðhátíðar alltaf við höndina. Gestir geta skoðað alla dagskrána, merkt við sín uppáhaldsatriði og búið til sína eigin hátíðardagskrá. Appið sendir síðan tilkynningu um 10 mínútum áður en valið atriði hefst svo auðveldara sé að missa ekki af því sem skiptir máli.
Þegar nær dregur hátíðinni bætast við fleiri gagnlegir eiginleikar. Þar á meðal verður hægt að fylgjast með staðsetningu strætisvagna í rauntíma og sjá hvenær næsti vagn er væntanlegur til og frá Herjólfsdal. Einnig verða upplýsingar um fyrirtæki og þjónustu í Vestmannaeyjum, meðal annars opnunartímar, staðsetningar á korti og ýmsar hagnýtar upplýsingar sem nýtast gestum á meðan á hátíðinni stendur.
Í appinu verður jafnframt hægt að hlusta á Þjóðhátíðarlögin og fleiri eiginleikar og efni munu bætast við á næstu vikum.
Markmið Dalsins er að gera upplifun gesta enn betri með því að safna öllum helstu upplýsingum um Þjóðhátíð á einn stað. Hvort sem um er að ræða dagskrá, tilkynningar, samgöngur eða þjónustu verður Dalurinn öflugur leiðarvísir fyrir alla sem leggja leið sína í Herjólfsdal.
Dalurinn er í boði fyrir bæði iPhone og Android og hægt er að sækja appið í App Store og Google Play.
„Við viljum gera það eins einfalt og hægt er fyrir gesti að njóta Þjóðhátíðar. Með Dalnum eru allar helstu upplýsingar á einum stað og gestir geta skipulagt sína eigin hátíð, fengið áminningar um dagskrárliði og fylgst með nýjum upplýsingum eftir því sem nær dregur. Þetta er þjónusta sem við teljum að muni bæta upplifun gesta til muna.“ segir Jónas Guðbjörn formaður Þjóðhátíðarnefndar og hvetur fólk til þess að ná sér í appið.