„Ef við skoðum árin 2000 til 2009 út frá gögnum Hagstofu Íslands sem útreiknað veiðigjald byggir á, þá kemur fram að hagnaður útgerðar yfir allt tímabilið er rétt tæpir 50 milljarðar, þ.e. eins og þetta hefur verið síðastliðin ár í því kerfi sem við búum við. Ef við reiknum þetta út frá því sem frumvarpið gerir ráð fyrir þá er veiðileyfagjaldið rúmir 130 milljarðar. Þetta þýðir að tekjuskattur sem lagður er á sjávarútveg er 200%,“ sagði Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,“ framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar þegar hann var spurður út í nýja sjávarútvegsfrumvarpið og afleiðingar þess.