Deiliskipulagi breytt vegna World Class við Hástein
Tölvugerð mynd sem sýnir fyrirhugaða viðbyggingu við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Mynd/vestmannaeyjar.is

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis við Hástein. Breytingin er nauðsynleg vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar líkamsræktaraðstöðu fyrir World Class og niðurrifs elstu búningsklefa íþróttahússins.

Samkvæmt afgreiðslu ráðsins felst breytingin meðal annars í stækkun byggingarreits vestan við eldri íþróttasal hússins. Þar er fyrirhugað að byggja upp líkamsræktaraðstöðu samkvæmt útboðsskilmálum sem þegar liggja fyrir.

Tillagan var samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa D- og E-lista. Fulltrúi M-lista greiddi atkvæði gegn henni.

Í bókun M-listans segir að mikil óánægja ríki vegna málsins og hafi hún meðal annars komið fram í greinarskrifum og hjá hagaðilum. Af þeim sökum muni Miðflokkurinn ekki styðja tillöguna.

Fulltrúar D-listans bókuðu á móti að þar sem samningar við rekstraraðila liggi þegar fyrir sé mikilvægt að halda ferlinu áfram svo unnt verði að byggja upp líkamsræktaraðstöðu í Vestmannaeyjum.

Jafnframt er tekið fram í bókuninni að íbúar og hagaðilar geti komið athugasemdum sínum á framfæri þegar breytingin á deiliskipulaginu fer í lögbundið kynningarferli.

Nýjustu fréttir

Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.