Eyjakonan Díana Dögg Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen, tilvonandi leikmaður ÍBV, munu leika til úrslita um þýska meistaratitilinn með félagsliði sínu Blomberg-Lippe.
Blomberg-Lippe tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu, gegn Borussia Dortmund, þegar liðið vann stórsigur á Thüringer HC, 35-24, í oddaleik í undanúrslitum þýsku deildarinnar í dag. Blomberg-Lippe var sterkara liðið í leiknum og var staðan 19-10 í hálfleik. Þær unnu að lokum öruggan níu marka sigur.
Díana Dögg skoraði eitt mark og gaf sex stoðsendingar. Andrea skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar.
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra…
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til…
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Þrjú íþróttafélög í Eyjum fá rúma milljón úr Hvatasjóði
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og…
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en…