Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Andrea og Díana Dögg eftir leikinn í dag.

Eyjakonan Díana Dögg Magnúsdóttir og tilvonandi leikmaður ÍBV, Andrea Jacobsen urðu þýskir meistarar í dag með félagsliði sínu, Blomberg-Lippe, eftir sigur á Dortmund í oddaleik. Staðan í einvíginu fyrir leikinn var 1-1 og því um hreinan úrslitaleik að ræða.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn en Blomberg leiddi með einu marki í hálfleik, 13-12. Blomberg tók öll völd á vellinum í síðari hálfleik og unnu að lokum með fjórum mörkum. Lokatölur leiksins 30-26.

Díana Dögg skoraði fjögur mörk í leiknum og Andrea Jacobsen þrjú. Þetta er í fyrsta skipti sem Blomberg-Lippe verður þýskur meistari en þær töpuðu í úrslitum í fyrra. Fyrr í vetur urðu þær deildarmeistarar.

Eyjafréttir óska stelpunum til hamingju með árangurinn.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.