Eyjasveitin Dólgarnir er komin í úrslit Músíktilrauna. Strákarnir spiluðu á þriðjudaginn í undanriðli keppninnar en voru ekki meðal þeirra tveggja sveita sem komust áfram í það skiptið. En dómnefnd keppninnar velur nokkrar hljómsveitir eftir á sem komast áfram og greinilegt að Dólgarnir hafi unnið dómnefndina á sitt band. Dólgarnir er tríó en bandið skipa þeir Geir Jónsson, 14 ára söngvari og gítarleikari, Gísli Rúnar Gíslason, 16 ára trommari og Arnar Geir Gíslason, 12 ára bassaleikari.