Dramatískur sigur ÍBV
Elmar_DSC_0255
Elmar Erlingsson skoraði 15 mörk í kvöld. Eyjar.net/Óskar P. Friðriksson

Það var mikil dramatík í leik FH og ÍBV í Kaplakrika í kvöld. Eyjamenn réru lífróður því allt annað en sigur hefði þýtt sumarfrí fyrir Íslandsmeistarana.

Skemmst er frá því að segja að Eyjamenn náðu að afstýra því með glæsibrag. Liðið leiddi lengi vel í síðari hálfleik en undir lokin komust FH-ingar yfir. En Eyjaliðið sýndi ótrúlega seiglu í lokin og komust yfir á lokamínútunni. FH fékk færi á að jafna á lokasekúndununni en nýttu ekki færið og Eyjamenn fögnuðu vel og innilega í leikslok.

Elm­ar Erl­ings­son lék á alls oddi í kvöld, skoraði 15 mörk, þar af 4 úr vítum. Pet­ar Jokanovic varði 14 skot og Pavel Mis­kevich varði 8 skot, þar af eitt víti.

Liðin mætast því í fjórða sinn í einvíginu á frídegi verkalýðsins á miðvikudag. Sá leikur fer fram í Eyjum.

Nýjustu fréttir

Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.