Dregið úr atvinnuleysi í Eyjum

Atvinnumál voru til umræðu á fundi bæjarráðs í vikunni. Vestmannaeyjabær hefur fylgst grannt með þróun atvinnuleysis frá því Covid skall á í mars 2020. Heldur tók að draga úr atvinnuleysi þegar líða fór á vorið 2021. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru 117 skráðir atvinnulausir í mars, en í júní eru 75 einstaklingar í Vestmannaeyjum skráðir atvinnulausir.

Sumarstörf
Ráðnir voru starfsmenn í 12 svokölluð námssmannastörf fyrir sumarið 2021. Í fyrra auglýsti Vestmannaeyjabær mun færri sumarstörf, svo ekki er hægt að bera það eftirspurn eða fjölda námssstarfa. Vestmannaeyjabær auglýsti fjögur störf sumarið 2020 og ráðið var í þau öll. Á þessu ári gefst öllum námsmönnum 18 ára og eldri námsmannastörf, en í fyrra var eingöngu um að ræða háskólastörf.

Hvað varður hefðbundin sumarstörf og sumarafleysingar þá voru 95 einstaklingar ráðnir til starfa sumarið 2020. Í ár voru ráðnir alls 61. Í umhverfisstörfum voru 65 einstaklingar ráðnir árið 2020, en í ár eru 30 einstaklingar í þeim störfum og alls bárust 102 umsóknir um störf í Vinnuskólanum árið 2020, en 91 umsókn á þessu ári.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.