„Metnaðarfull uppbygging við Íþróttamiðstöðina!“ svo hljóðar nýjasta tilkynning Vestmannaeyjabæjar. Í síðustu viku voru það fréttir af kúlunni umdeildu. Það er skuggalegt að sjá hversu mikið er keyrt í gegn korteri fyrir kosningar. Það verður að teljast mjög vafasamt að binda hendur næstu bæjarstjórnar með því að hrinda af stað fjárfrekum og misvel útfærðum verkefnum sem búið var að lofa en ekki búið að koma til framkvæmda þannig að næsti meirihluti situr upp með reikninginn. Á sama tíma klappar núverandi bæjarstjórn sér á bakið fyrir góðan rekstur.
Framundan eru stór verkefni, búið er að lofa ýmsu en fleyta því yfir á komandi bæjarstjórn. Klefabyggingin við íþróttahúsið mun kosta skildinginn. Vaðið var í framkvæmdina án samráðs við starfsmenn og þá sem nýta aðstöðuna. Miðflokkurinn stóð í síðustu viku fyrir fundi þar sem Erlingur Richardsson fjallaði um stöðu íþróttamannvirkja í Vestmannaeyjum. Þar virtust allir fundarmenn sammála um það að líta þyrfti lengra en til næsta dags við uppbyggingu. Líta þarf til framtíðar og móta skýra heildstæða framtíðarsýn vegna uppbyggingar og viðhalds íþróttamannvirkja og annarra mannvirkja sem bærinn á og rekur. Það vita svo allir hvernig útboðsmálin standa vegna reksturs líkamsræktar í Íþróttamiðstöðinni, ekki var betur vandað til verka en svo að bærinn skapaði sér bótaskyldu, búið er að kæra nýtt útboð eins og alkunna er. Vonandi situr bærinn ekki uppi með aðra fokhelda byggingu eins og Ægisgötu 2 þar sem bærinn á mjög stórt óinnréttað rými sem staðið hefur autt frá því að endurbyggingu hússins lauk.
Listaverkið er komið til að vera hvaða skoðun sem menn hafa á því en hvað með stærsta kostnaðarliðinn í því – göngustígana og bílastæðin, hver skildi nú sitja uppi með það verkefni og reikninginn sem því fylgir? Framundan eru milljarða framkvæmdir sem nauðsynlegt er að ráðast í, má þar nefna vatnslögnina, nauðsynlegt viðhald gatnakerfis sem setið hefur á hakanum, viðhald skólahúsnæðis og uppbygging leikskóla. Er tilviljun að allir bæjarfulltrúar meirihlutans eru að hætta á þessum tímapunkti? Það mun koma í hlut næstu bæjarstjórnar að finna leið til þess að fjármagna þessar framkvæmdir og koma þeim til framkvæmda, já það er gott að láta einhvern annan um reikninginn.
Miðflokkurinn óttast ekki erfið verkefni né áskoranir og mun mæta þeim af yfirvegun með skynsemina að leiðarljósi.
Sæunn Magnúsdóttir
Höfundur skipar 2. sæti Miðflokksins í Vestmannaeyjum.