Drjúgur hluti tímans fór í siglingar
Vestmannaey Okt 22
Vestmannaey VE kemur til hafnar í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði nánast fullfermi í Eyjum á miðvikudaginn. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri er spurður í viðtali á vef Síldarvinnslunnar hvar hefði verið veitt.

„Það var víða veitt í þessum túr. Við byrjuðum á Pétursey og færðum okkur síðan yfir á Vík. Við vildum fá heldur meiri ýsu og fórum austur á Öræfagrunn og síðan á Mýragrunn en ýsan jókst lítið í aflanum. Loks var farið vestur á Höfða og endað í vitlausu veðri á sama stað og við byrjuðum á, það er á Péturseynni. Þrátt fyrir veðrið var þar þokkalegasta veiði. Við vorum eina fjóra sólarhringa að veiðum en drjúgur hluti tímans fór í siglingar. Aflinn er mjög blandaður; þorskur, ufsi, ýsa og langa. Í dag verður lagt af stað til Akureyrar en þar verður farið í slipp. Þar verður skipið allt tekið í gegn. Það verður hreinsað, málað, öxuldregið, vélar teknar upp og svo framvegis. Við gerum ráð fyrir að slippvinnan taki um mánaðartíma,” sagði Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.