Dýpkun gekk vel í morgun
Alfsnes 06 24 IMG 5443 2
Álfsnesið við dýpkun við Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Dýpkun í mynni Landeyjahafnar gekk mjög vel í morgun eftir að lítið hafði áunnist daginn áður. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar.

„Dýpkunin gekk mjög vel í morgun en lítið sem ekkert í gær,“ segir Pétur. Horfur næstu daga eru taldar góðar og vekja vonir um að hægt verði að ná nægilegum árangri til að opna höfnina á ný.

„Útlitið næstu daga er mjög gott og við reiknum með og vonumst til að þessi gluggi fram undan dugi til að opna höfnina,“ segir hann. Á meðan heldur óbreytt fyrirkomulag samgangna áfram, en bæði Herjólfur og Baldur sigla til og frá Þorlákshöfn.

Áform eru um að taka nýjar dýptarmælingar á næstu dögum. „Við áætlum að mæla dýpið á þriðjudag eða á miðvikudag,“ segir Pétur. Framgangur dýpkunar mun ráða úrslitum um hvenær hægt verður að hefja siglingar um Landeyjahöfn á ný. Hér að neðan má sjá feril Álfsness á svæðinu undanfarnar klukkustundir.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.