Dýpkunarframkvæmdir í Landeyjahöfn samkvæmt áætlun

Haustdýpkun Landeyjahafnar hófst 16. september síðastliðinn. Björgun ehf. sér um dýpkunina og er áætlað að fjarlægja þurfi um 100.000 rúmmetra af efni úr höfninni á tímabilinu sem stendur til 15. nóvember.

„Frá því Björgun hóf dýpkun nú í september hafa um 50 þúsund rúmmetrar af efni verið fjarlægðir úr höfninni. Dýpið í höfninni er almennt gott en áhersla er lögð á að halda góðu dýpi í hafnarmynninu og hreinsa það þegar veður leyfi. Ef dýpi er nægjanlegt í hafnarmynninu er dýpkað innan hafnar í fyrirbyggjandi verkefnum,” segir Fannar Gíslason forstöðumaður hafnardeildar Vegagerðarinnar.

Veður hefur mikið að segja um hvort unnt sé að vinna við dýpkun í höfninni. Síðasta dýpkunartörn fór fram  9. til 13. október. Verktaki hefur þurft að fara frá svæðinu meðan lægðir ganga yfir og er nú í Þorlákshöfn vegna veðurs.

Nýi Herjólfur siglir til Þorlákshafnar í dag þar sem ölduhæð er of há til að sigla inn í Landeyjahöfn. Hins vegar er ölduspáin hagstæð fyrir næstu sjö daga og því ætti Herjólfur að sigla til Landeyjahafnar næstu daga.

Tekið af vef vegagerðarinnar

Nýjustu fréttir

Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.