Ef við vinnum Frakkana verður góð vertíð
Rólegt hefur verið yfir loðnuveiðunum í byrjun vertíðar og ræðst það mest af veðri og að lítið hefur fundist. Búið er að gefa út 120 þúsund tonna kvóta til íslenskra skipa. Mælingum er ekki lokið og er beðið niðurstaðna úr leiðangri Árna Friðrikssonar.
�??Við erum búnir að veiða um 5000 tonn á Heimaey og Sigurð það sem af er vertíð,�?? sagði Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins þegar rætt var við hann í dag. �??Okkar kvóti í byrjun er um 25.000 tonn en við bíðum spenntir eftir niðurstöðum úr leiðangri Árna Friðrikssonar. �?að ætti að skýrast í lok vikunnar hvort við getum vænst þess að bætt verði við kvóta,�?? bætti Eyþór við.
Hann sagði þá bjartsýna á að svo verði þar sem vart hefur verið við þó nokkuð af loðnu fyrir vestan og einnig nú norður af Sléttu. �??Eins og oft áður er þetta spennuþrungið tímabil – eigum við ekki bara að segja það að ef við vinnum Frakkana í kvöld í handboltanum, þá verður góð vertíð,�?? sagði Eyþór að endingu.

Nýjustu fréttir

Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.