Efling sýslumannsembættisins í Eyjum
Íris Róbertsdóttir

Í bæjarráði í hádeginu í dag var kynnt sú ánægjulega ákvörðun dómsmálaráðherra að auglýsa stöðu sýslumannsins í Eyjum. Við tökum því fagnandi að dómsmálaráðherra hafi tekið tillit til okkar sjónarmiða í þessu máli. Við höfum talað af festu fyrir þessum málsstað við þá tvo ráðherra sem gegnt hafa embætti dómsmálaráðherra eftir að sá þriðji tók þá ákvörðun að kalla sýslumanninn burt frá Eyjum í byrjun ársins. Nú hefur þetta borið árangur og því ber að fagna. Það er ekki síst ánægjulegt að verið er að færa tvö ný og skilgreind verkefni til embættisins í Eyjum til viðbótar við þau sem þar eru fyrir, en við lögðum þunga áherslu á það við ráðherrann til að festa starfsemina hér í sessi. Það er miklvægt  skref í því að styrkja embættið og var nauðsynlegt að fá líka ný sérverkefni sem vonandi í framtíðinni skila fleiri stöðugildum. Það sýnir sig að samstaða skilar árangri.

Ég vil þakka dómsmálaráðherra fyrir að hafa hlustað og öllum sem hafa lagt hönd á plóginn til að ná þessari niðurstöðu,  bæjarfulltrúum, þingmönnum Suðurkjördæmis og fleirum.

Íris Róbertsdóttir
Bæjarstjóri

Nýjustu fréttir

Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.