Egyptar og Tyrkir fá fyrsta makríl vertíðar sem lofar góðu hjá VSV

„Við höfum tekið við um 4.000 tonnum frá upphafi vertíðar 13. júlí, fínum makríl með lítilli átu. Meiningin er að hreinsa upp vinnslunni í dag og á morgun fyrir Þjóðhátíð. Skipin fara til veiða síðdegis á mánudag og við hefjum vinnslu á ný að morgni miðvikudags 8. ágúst.“ Sindri Viðarssonar, sviðsstjóri uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar, er afar lukkulegur með upphaf markrílvertíðar. Söluhorfur eru líka góðar og fyrsti farmurinn er þegar á förum til Egyptalands og Tyrklands. Þar bíða kaupendur spenntir eftir fiskinum góða frá Eyjum á sína diska.

Makrílvertíðin markar enn ein þáttaskilin í starfsemi Vinnslustöðvarinnar. Nú voru teknar í gagnið hausa- og flökunarvélar í nýbyggingu samtengdri nýja uppsjávarfrystihúsinu. Í fyrsta sinn er unnið við aðstæður sem skapaðar hafa verið undanfarin ár með miklum og umfangsmiklum framkvæmdum og uppsetningu flókins tækjabúnaðar í vinnslusölum.

„Nú er unnið í umhverfi sem eftir hefur verið beðið lengi með eftirvæntingu. Breytingin er mikil því nærri lætur að við höfum tvöfaldað afköstin frá því sem áður var. Allt vinnsluferlið og meðhöndlun hráefnisins er eins og best verður á kosið.“

Öll skip Vinnslustöðvarinnar eru í höfn og þegar líður á morgundaginn dettur líka á dúnalogn í fiskvinnsluranni fyrirtækisins. Leikar æsast hins vegar að sama skapi í Herjólfsdal þegar hafist verður handa við að reisa Þjóðhátíðarþorpið með tilheyrandi innréttingum og aðbúnaði. Þjóðhátíð gengur í garð.

Vinnslustöðin greindi frá

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.