Einsi Kaldi áfram með skólamatinn – óvissa um kostnað foreldra
Einar Björn Árnason og Íris Róbertsdóttir handsala hér samninginn. Ljósmynd/Vestmannaeyjabær.

Einsi Kaldi veisluþjónusta mun áfram sjá um skólamáltíðir í Vestmannaeyjum. Óvissa ríkir hins vegar um greiðsluþátttöku ríkisins frá næstu áramótum.

Vestmannaeyjabær hefur samþykkt tilboð Einsa Kalda veisluþjónustu ehf. í skólamáltíðir. Eins og fram kemur í tilkynningu sveitarfélagsins mun fyrirtækið því áfram annast skólamatinn, líkt og það hefur gert frá árinu 2012.

Tilboð Einsa Kalda var það eina sem barst í útboðinu og var það sex prósentum yfir kostnaðaráætlun. Bæjarráð samþykkti samhljóða á fundi sínum 22. júlí að taka tilboðinu.

Kostnaður gæti fallið á foreldra

Við afgreiðslu málsins tók bæjarráð fram að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 muni sveitarfélagið áfram gera ráð fyrir að greiða sinn 25% hlut í kostnaði við skólamáltíðir.

Bæjarráð áréttar hins vegar að verði ákveðið að ríkið hætti að greiða 75% hlut sinn frá næstu áramótum muni sá kostnaður falla á forráðamenn barna.

Óvissa ríkir því um fyrirkomulag og greiðsluþátttöku vegna skólamáltíða eftir áramót, þótt nú liggi fyrir hver annast þjónustuna áfram.

Nýjustu fréttir

Raunverulegt sjálfstæði
Sjávarútvegurinn er tilvistarspurning fyrir Ísland
Karlalið ÍBV sigurvegari á Ragnarsmótinu á Selfossi
Upptökumannvirki Vestmannaeyjahafnar lokað tímabundið
Mikilvæg stig í húfi hjá Eyjamönnum í Keflavík
Yfir þúsund pysjur skráðar
Fjölmenni á opnum fundi Áfram Ísland
Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.