Einstakir tónleikar
Stórtónleikar Jónasar Sig og ritvéla framtíðarinnar, Fjallabræðra og Lúðrasveitae Vestmannaeyja og �?orlákshafnar í íþróttahúsinu í Grindavík, sl. laugardagskvöld munu lifa lengi í minningunni. �?eir voru hreint út sagt alveg frábærir, íþróttahúsið fylltist af fólki og tónlistarfólkið lék á als oddi á sviðinu.
Svo skemmtilega vildi til að Lúðrasveit Vestmannaeyja hélt upp á 75 ára afmæli sitt þennan dag, 22. mars. Í tilefni afmælisins lék tónlistarfólkið lagið ég veit þú kemur eftir Oddgeir Kristjánsson og Grindvíkingurinn Sigríður María Eyþórsdóttir söng svo fallega. Jónas Sig er án nokkurs vafa einn fremsti tónlistarmaður landsins, Fjallabræður eru flottur kór og skemmtu sér konunglega á sviðinu eins og allt tónlistarfólkið en um 150 manns voru á sviðinu. Lúðrasveitirnar voru frábærar og það hlýtur að vera einstök upplifun fyrir þær að taka þátt í svona skemmtilegu verkefni. Tónleikarnir voru sannarlega mikil upplifun fyrir alla viðstadda.
Tónleikarnir voru hluti af Menningarviku Grindavíkur og 40 ára kaupstaðarafmæli bæjarins.
(tekið af vefnum grindvik.is)

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.