Ekki hægt að skipa tvo skólastjóra yfir GRV
Á fundi fræðsluráðs í vikunni var lögð fram niðurstaða samráðshóps sem skipaður var af fræðsluráði þann 15. janúar sl. En samráðshópur fræðsluskrifstofu, Kennarafélags Vestmannaeyja og skólaráð hefur skoðað kosti og galla þess að hafa einn skólastjóra eða tvo yfir GRV.
Ljóst þykir að vegna ákvæða í lögum um grunnskóla er ekki hægt að skipa tvo skólastjóra yfir GRV án þessa að skipta skólanum í tvær skólaeiningar. �?að er samróma álit samráðshópsins að vera áfram með einn skólastjóra. Atriði á borð við mikilvægi þess að halda í GRV sem einn sameinaðan skóla hefur þar mikið vægi og einnig að ekki er einhugur varðandi það að breyta og hafa tvo skólastjóra. Starfshópurinn leggur áherslu á að óbreytt skipurit stjórnunar kallar áfram á aðgerðir til að tryggja og efla stjórnunarhlutverk skólastjóra og almennt stjórnun í GRV.
Sérálit Kennarafélags Vestmannaeyja
Fulltrúar KV skiluðu séráliti þar sem þeir vilja árétta áherslur sem Kennarafélag Vestmannaeyja setur fram um að skoðaðar verði aðrar leiðir eins og fleiri deildastjóra og að áfram verði unnið að því að styrkja stoðkerfi skólans.
Samþykkt að GRV verði áfram sem einn skóli með einum skólastjóra
Fræðsluráð þakkar samráðshópnum fyrir þær ábendingar og álit sem komið hafa fram. Í ljósi þessara niðurstaðna og umræðu sem ráðið hefur átt um málið á 301. og 302. fundi þess samþykkir ráðið að GRV verði áfram sem einn skóli með einum skólastjóra. Ráðið felur framkvæmdastjóra sviðsins, fræðslufulltrúa og skólastjóra GRV að fara vel yfir þær ábendingar sem komið hafa fram og vinni áfram að aðgerðum sem tryggja og efla stjórnunarhlutverk skólastjóra og stjórnun almennt í GRV. Fræðsluráð þakkar samstarfshópnum fyrir þeirra góðu vinnu, segir í bókun ráðsins.

Nýjustu fréttir

Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.