ELDHEIMAR eins árs á morgun, laugardaginn 23. maí
Nú er ár liðið frá opnun Eldheima og óhægt er að segja að vel hafi tekist til. Safnið hefur fengið einstaklega góðar viðtökur bæði innlendra og erlendra gesta. �?að er einnig sérstaklega ánægjulegt hve Vestmannaeyingar hafa tekið safninu vel. Á sl. ári voru gestir safnsins um 26.000. Gestafjöldinn fór fram úr björtustu vonum. Um helmingur gesta voru erlendir ferðamenn. Meðal innlendu gestanna voru margir heimamenn og brottfluttir Vestmanneyingar, það hefur verið afgerandi afstaða Eyjamanna að þó safnið rifji upp átakanlega lífsreynslu þá sé gott að það sé risið, því mikilvægt sé að komandi kynslóðir þekki þennan mikilvæga kafla í sögu Eyjanna. Surtseyjastofa opnaði svo 14 november sl. og hefur Surtseyjarsýningin ekki síður fengið góðar viðtökur.
Landeyjahöfn hefur haft mikil áhrif á gestafjölda í Eldheimum eins og í öðrum ferðaþjónustufyrirtækjum í Vestmannaeyjum. �?egar höfnin lokaði í lok nóvember endaði síðasta ferðamannaár á safninu og mikið hefur verið um afbókanir hópa það sem af er þessu ári.
Nú á þessum merku tímamótum er heitasta óskin að áreiðanlegar samgöngur til Eyja – allt árið – verði að veruleika, svo safnið geti blómstrað sem skyldi. ELDHEIMAR hafa alla burði í að vera sá staður sem allir verða að sjá.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.