Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Eldur kviknaði í vélarrúmi þegar unnið var við bátinn. Engan sakaði og tjón virðist ekki mikið
Slökkviliðsmenn að störfum um borð í Maggý VE.

Allt slökkvi- og sjúkraflutningalið Vestmannaeyja var kallað út á ellefta tímanum í morgun  þegar eldur kom upp í vélbátnum Maggý VE 108, þar sem hann lá við bryggju Skipalyftunnar. Eldurinn kviknaði í vélarrúmi bátsins en slökkvistarf gekk greiðlega og fyrstu upplýsingar benda til að tjón sé ekki mikið.

„Við fengum tilkynningu um eld í báti og í ljós kom að um smávægilegan eld var að ræða í vélarrúminu. Búið er að slökkva eldinn og nú er verið að reykræsta. Tjón af völdum eldsins er væntanlega ekki mikið en erfitt er meta tjón af reyk á þessu stigi. Hjá okkur gekk allt samkvæmt áætlun, en við verðum alltaf að búa okkur undir það versta þegar eldur kemur upp í bátum og skipum,“ sagði Gústaf Adolf Gústafsson, varaslökkviliðsstjóri á vettvangi.

Lögreglan hefur hafið rannsókn á eldsupptökum. Samkvæmt heimildum var verið að ljúka framkvæmdum eftir vélaskipti og stóðu yfir suðuvinna á millivegg milli lestar og vélarrúms þegar eldur kviknaði í olíu í vélarrúminu. Enginn var í hættu og ekki urðu slys á fólki.

Maggý VE 108 er 113 brúttótonna stálskip, smíðað í Gdansk í Póllandi árið 1988 hjá Wisla Yard. Skipið er 25,94 metrar að lengd, 6 metrar á breidd, og er gert út af Narfa ehf. í Vestmannaeyjum. Það hét áður Ósk og hefur um árabil verið gert út til dragnóta- og humarveiða.

 

Nýjustu fréttir

Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.