Elena Rut - Langar að spila fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni
Mynd/Sporthero

Landsliðið og Pressuliðið léku sinn árlega leik á TM mótinu sem fór fram á Hásteinsvelli í sól og blíðu. Leiknum lauk með 4-7 sigri Pressuliðsins. Stelpurnar sýndu frábær tilþrif í leiknum og voru algjörlega til fyrirmyndar. Fulltrúar ÍBV í Landsliðinu svöruðu nokkrum spurningum Eyjafrétta um mótið og fleira.

Nafn? Elena Rut Einisdóttir.

Aldur? 12 ára.

Fjölskylduhagir? Mamma mín er Thelma Rut og pabbi minn er Einir og ég á tvær yngri systur sem heita Mía María og Ísabella Jana.

Hvernig var að spila landsleik TM mótsins? Það var rosalega gaman og þetta var einn af mínum uppáhalds leikjum sem ég hef spilað.

Hvernig gekk á mótinu? Það gekk frekar vel hjá okkur.

Hvað stóð upp úr? Að spila Landsliðs-Pressuliðs leikinn og að vera með vinkonum mínum í liðinu alla helgina.

Hvert er stefnan tekin í fótboltanum? Mig langar að ná mjög langt. Mig langar að spila með Íslenska landsliðinu og spila með liði í útlöndum þegar ég verð eldri.

Uppáhalds knattspyrnumaður/kona? Glódís Perla og Sveindís Jane.

Eitthvað að lokum? Takk ÍBV fyrir geggjað TM-mót og áfram ÍBV!

Nýjustu fréttir

Elena Rut – Langar að spila fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni
Síld farin að hrygna suður af landinu
Halldór Hjörleifsson er Eyjamaðurinn
Meistaramót barna kláraðist í dag
Herjólfur III gæti orðið haffær í lok júlí
Ein fremsta hlaupakona heims hljóp The Puffin Run leiðina
Öll börn eiga að sitja við sama borð
Hrafnhildur – Blendnar tilfinningar að kveðja FÍV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.