Elís Jónsson hyggst gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
�??Í bréfi til meðlima í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins þann 4. janúar sl. gerði ég grein fyrir minni skoðun og skilning mínum á fundi fulltrúaráðsins 27. desember síðastliðinn. Í framhaldi kom tilkynning frá stjórn fulltrúaráðsins til meðlima sem staðfesti skilning minn enda brugðust fundarmenn við með lófaklappi og enginn hreyfði andmælum þegar fundarstjóri tilkynnti skilning sinn að þar með lægi fyrir ákvörðun um prófkjör. �?g vona að fyrirhugaður fundur fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum kl. 20 í kvöld taki af allan vafa enda náðist einróma samstaða í stjórn fulltrúaráðsins um prófkjör eftir að uppstilling var felld af fulltrúaráði á fyrrgreindum fundi. �?g tel að með þessari ákvörðun sé komið til móts við vilja kjósenda í Vestmannaeyjum um að þeir fái að velja þá fulltrúa sem þeir treysta best á lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 26. maí næstkomandi. �?g vona að sú biðstaða sem myndaðist eftir að nýr fundur var boðaður leysist endanlega og nú opnist leið fyrir áhugasama einstaklinga til að gefa kost á sér í prófkjör. Að því sögðu vil ég koma á framfæri því sama og ég sendi í bréfi mínu til meðlima í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum að ég mun ekki skorast undan þeim áskorunum og hvatningum sem mér hafa borist og mun að sjálfsögðu gefa kost á mér í fyrsta prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum síðan 1990.�??
Með vinsemd og virðingu, Elís Jónsson.

Nýjustu fréttir

Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Skemmtilegast að sauma í skólanum
Gaman að vera byrjaður í skólanum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.