Elliði Vignisson: Dýpi í Landeyjahöfn með því besta sem sést hefur á þessum árstíma - myndir
Í gær var dýpið í Landeyjahöfn mælt. Eftir skítabrælu á sunnudaginn og þungan sjó átti maður allt eins von á því að dýpið væri orðið of lítið. �?lduhæð þennan tíma fór í allt að 6 metra og hamagangurinn ógnvænlegur. �?ök rifnuðu af húsum hér í Eyjum og björgunarsveitir áttu annasaman tíma. �?að var því ánægjulegt að sjá niðurstöðu mælingar frá því eftir hádegið í gær sem sýnir að dýpið í Landeyjahöfn er heilt yfir með því besta sem verið hefur.
Sem fyrr er það því ölduhæðin sem er að valda vanda en þumalputtareglan er sú að núverandi skip siglir ekki í Landeyjahöfn þegar ölduhæð fer yfir 2,5 metra. �?á þarf einnig að líta til þess að aðstæður geta verið margvíslegar og ókyrrðin mikil eftir brælur. Að lokum veldur það bæði áhyggjum og miklum vanda að Herjolfur er, eins og alþjóð þekkir, bilaður og því ekki mögulegt að beita fullu afli.
Skipstjórum Herjólfs og áhöfn er því nokkur vorkun. �?llum er þeim ljóst að bæjarbúar og gestir vilja sigla i Landeyjahöfn og eðlilega eru þau öll af vilja gerð. Aðstæður eru hinsvegar erfiðar, skipið afar óheppilegt og þar að auki bilað. �?essu sýnum við öll af sjálfsögðu fullan skilning.
Við þurfum því á góðu veðri að halda svo Herjólfur geti siglt í Landeyjahöfn. Vonandi fáum við það fljótlega því af fenginni reynslu þá lokast höfnin vegna grynninga milli ytri garða síðar í vetur.
(Enn og aftur minni ég á að Vestmannaeyjabær fer ekki með forræði á Landeyjahöfn og eru þessi skrif eingöngu til að upplýsa bæjarbúa um stöðu þessara mála. Upplýsingar draga enda úr deilum og auka skilning. Sameinum frekar en að sundra.)

Nýjustu fréttir

Andrea, Sandra og Díana í landsliðshópi Arnars
Látum rannsóknirnar vísa okkur veginn
Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.