Elstu Eyjamennirnir – Páll í Mörk og Jónína frá Nýborg
Jónína Einarsdóttir og Páll Magnús Guðjónsson. Mynd/vestmannaeyjar.is

Á vef Vestmannaeyjabæjar er tveimur af ástsælum Eyjamönnum, Páli Magnúsi Guðjónssyni frá Mörk og Jónínu Einarsdóttur frá Nýborg, óskað innilega til hamingju með afmælin. Þau eru elstu íbúar Vestmannaeyja og hafa bæði átt langa og merkilega ævi í samfélaginu.

Páll Magnús Guðjónsson  
Páll fæddist 12. desember 1926 í Hlíð undir Eyjafjöllum. Hann ólst upp í Vestmannaeyjum og varð sjómaður, eins og margir samferðamenn hans. Páll giftist Guðbjörgu Amelíe Þorkelsdóttur árið 1950 og eignuðust þau fjögur börn. Þau bjuggu lengi á Vestmannabraut og síðar í Kleifahrauni. Guðbjörg lést árið 2016, en Páll hefur alla tíð verið þekktur fyrir dugnað og hlýju í Eyjasamfélaginu. Á myndinni má sjá Pál við listsköpun.

Jónína Einarsdóttir  
Jónína fæddist 13. nóvember 1926 í Pétursborg á Fáskrúðsfirði. Hún flutti ung til Eyja og vann við fiskvinnslu, netagerð og í þvottahúsi fram að gosinu 1973.  Jónína bjó í Götu fram að gosi og eftir það í Nýborg og er þekkt fyrir samhug og vinnusemi. Hún átti tvær dætur, Erlu og Lindu, og hefur verið mikilvægur hluti af samfélaginu í Vestmannaeyjum í áratugi. Á myndinni má sjá Jónínu með litlum loðnum vini en hún er einstakur dýravinur.

Vestmannaeyjabær sendir þeim báðum bestu óskir og þakkar fyrir allt sem þau hafa lagt til samfélagsins í gegnum tíðina.

Nýjustu fréttir

Tvíþætt staða orkuskipta
Netöryggisfræðsla fyrir foreldra grunn- og framhaldsskólanemenda
Áskriftarkort sundlaugagesta framlengd
Eyjarnar landa fyrir austan
Sýningin Geological Rhapsody opnar á morgun
Nýtt fyrirkomulag í Uppbyggingarsjóði Suðurlands
Íþróttahátíð ÍBV í kvöld
Bærinn niðurgreiðir heimsendan mat um 53%
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.