Emmsjé Gauti og Aldamótatónleikarnir á Þjóðhátíð

Nú hafa fyrstu listamenn verið staðfestir á Þjóðhátíð í Eyjum – Emmsjé Gauti og Aldamótatónleikarnir.

“Gauti hefur átt eitt allra vinsælasta lag landsins undanfarna mánuði – Malbik – og einn allra öflugasti skemmtikraftur landsins, stemningin sem hann mun ná í Herjólfsdal verður einstök. Emmsjé Gauti ásamt Króla – Malbik: https://www.youtube.com/watch?v=_cgIQDoCYCU

Aldamótatónleikarnir hafa heldur betur stimplað sig inn í íslenskt tónleikahald um allt land enda uppselt á alla tónleika um allt land frá því þessi hópur byrjaði að skemmta saman: Gunni Óla, Hreimur, Magni, Birgitta Haukdal og Beggi Sóldögg stíga á stóra sviðið í Herjólfsdal og flytja öll sín bestu lög,”  segir í tilkynningu frá Þjóðhátíðarnefnd

Forsala aðgöngumiða hófst í morgun á https://dalurinn.is/ og opnaði Herjólfur einnig fyrir bókanir í skipið á Þjóðhátíð.

Nýjustu fréttir

Umhverfisviðurkenningar Vestmannaeyjabæjar afhentar
Herrakvöld handknattleiksdeildar á laugardaginn
Bæjarstjórn fundar – fylgst með fundinum í beinni
Feta slóð Flakkarans um hraunið
H-verslun heldur annað hlaup í Eyjum
Önnur uppsögn starfsmanns Vestmannaeyjabæjar úrskurðuð ólögmæt
Framkvæmdir við innisundlaugina langt fram úr áætlun
Börnin eru ekki vandamálið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.