Engar athugasemdir við móttökustöð úrgangsefna
Gróf tölvuunnin mynd af móttöku og flokkunarstöðinni við Eldfellsveg sem gefur vísbendingu um hvaða breytingar verða á ásýnd. Búið er að færa aðkomu að svæðinu norðar ásamt flokkunaraðstöðunni fyrir almenning. Aðstaða á vinnusvæðinu bætt með frágengnu yfirboði, steyptum efnishólfum, byggingu sem er aðstaða fyrir starfsemina við flokkunarsvæðið og tekið til á svæðinu næst hraunmyndunum til hægri á myndinni.

Deiliskipulag fyrir móttökustöð úrgangsefna var lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu á fundi umhverfis og skipulagsráðs á mánudag, tillaga af deiliskpulagi fyrir móttökustöð úrgangsefna (I-1). Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 10. febrúar 2021 með athugasemdafresti til 24. mars 2021. Engar athugasemdir bárust. Tillagan var einnig send til tilgreindra umsagnaraðila. Umsagnir bárust frá fimm stofnunum, engin þeirr gerir athugasemdir við málið.

Niðurstaða
Ráðið samþykkir tillögu deiliskipulags sbr. ákvæði Skipulagslaga nr. 123/2010.

A1334-004-U03-U-Móttökusvæði úrgangsefna deiliskipulag- í auglýsingu.pdf
A1334-004-D03 Móttökusvæði úrgangsefna, deiliskipulag – DRÖG með loftmynd.pdf

Nýjustu fréttir

Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim á morgun
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.