Engin svívirðing – engin árás

Endurkoma forvera míns í bæjarmálaumræðuna hér í Eyjum um síðustu helgi var nokkuð óvænt og sérkennileg, svo ekki sé nú meira sagt.

Ég hafði staðfest, aðspurð, í samtali við blaðamann Stundarinnar þá skoðun mína að ég teldi óeðlilegt að Herjólfur ohf keypti lögfræðiþjónustu frá fyrirtæki í eigu stjórnarformanns félagsins. Þetta felur bara í sér almenna og eðlilega varðstöðu gegn hagsmunaárekstrum. Og það á líka að forðast þær aðstæður sem kveikja grun um slíkan árekstur. Þessu sjónarmiði hafði ég áður komið á framfæri við stjórnarformanninn sjálfan, þannig að ekki kom það honum á óvart. Það er líka rétt að geta þess að ég og oddviti Eyjalistans vorum, og erum, fullkomlega sammála í þessari afstöðu.

Í öðru lagi svaraði svo fjármálastjóri bæjarins að sjálfsögðu fyrirspurnum tveggja fjölmiðla um upphæð þjónustukaupa af fyrrgreindri lögmannsstofu, enda í samræmi við þá stefnu núverandi bæjaryfirvalda að upplýsingar um öll slík viðskipti eigi að vera uppi á borðinu. Það kom mér reyndar nokkuð á óvart að forveri minn skyldi gefa til kynna þá skoðun að ekki hefði átt að veita þessar upplýsingar.

Mest á óvart komu þó orðin – eða öllu heldur orðalepparnir – sem forveri minn notaði um þennan framgang málsins; talaði um fordæmalausar árásir á stjórnarformanninn og að verið væri að svívirða saklausan mann. Eins og sést af ofangreindu voru þetta engar árásir og þaðan af síður svívirðingar. Ég var einfaldlega að benda á hið augljósa og í því fólst ekki einu sinni gagnrýni á stjórnarformanninn – hvað þá árásir eða svívirðingar. Enda situr formaðurinn í umboði og á ábyrgð núverandi meirihluta bæjarstjórnar en ekki fyrrverandi; þótt sumir virðist reyndar eiga erfitt með að átta sig á því.

Hvað forvera mínum gengur til með þessari innkomu í bæjarmálaumræðuna hér í Eyjum er mér óskiljanlegt – en fólk getur allavega núna hætt þeim samkvæmisleik að geta sér til um hvenær fyrstu hrópin muni heyrast úr Ölfusi til Eyja. Það er komin niðurstaða.
Í lokin vil ég svo nota tækifærið til að óska forvera mínum alls velfarnaðar í nýju starfi í Ölfusinu.

Íris Róbertsdóttir
Bæjarstjóri í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.