Enn ríkir verðstríð á eldsneytismarkaði á Suðurlandi. Munar nú 17 krónum á lítranum af bensíni, hvort hann er keyptur af Orkunni eða Skeljungi en bæði félögin eru í sömu eigu. Á höfuðborgarsvæðinu munar tólf krónum á verði á bensínlítranum þar sem hann er ódýrastur og þar sem hann er dýrastur. Hjá Orkunni á Suðurlandi kostar lítrinn af bensíni 184,90 krónur en algengt verð hjá N1, Olís og Skeljungi er 201,90 krónur lítrinn.