Drengirnir á Huginn VE 55 eru iðnir að viðhalda bloggsíðu sinni. Þar eru sagðar veiðifréttir, fréttir af mannlífinu um borð og einnig í landi. Skipið er nú statt rétt vestan við Írland á kolmunnaveiðum. Það hefur verið leiðindaveður hjá þeim undanfarið en Huginsdrengirnir eru að vonast til að fari að lægja. Síðastliðinn laugardag héldu þeir loðnuslútt í Golfskálanum, ásamt mökum sínum. En Huginsdrengir eru einmitt þekktir fyrir sín fjölmörgu slútt.